Jólagjafir!
Þegar nær dregur jólum kemur alltaf að því að maður fær spurninguna: Hvað langar þig í jólagjöf?
Venjulega, þ.e. undanfarin ár, hef ég ekki haft hugmynd um hvað mig langar í (eða vantað!)
Núna er ég komin með nokkrar hugmyndir 
Mig langar í flott spari úr (búin að nefna það við kallinn!)
Hárþurka, ég á/átti hárþurku síðan ég veit ekki hvenær en hef ekki notað hana í mörg ár, hún er/var heima hjá mömmu síðast þegar ég vissi. Núna langar mig í góða hárþurku, sem er með hitastillingu, þannig að maður getur blásið köldu og heitu, ekki bara heitu!
Svo langar mig í bækur sem er "auðvelt" að lesa, þ.e. einhverjar skáldsögur eða spennusögur.
Einnig hefði ég ekkert á móti því að fá gjafabréf í Abaco, hef áhuga á að fara þangað fljótlega eftir jól!
Svo sá ég að það er búið að gefa út fyrstu seríuna af Lost á DVD.
Ég man ekki eftir fleiru í augnablikinu.
Hvað kom úr jólapakkanum!