Þorbjörg og ruglið mitt!
Kennsla hefst á 4 önn
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 68 dögum
Jólafríið búið
Blogg mitt og minna
Fyrverandi vinnustaðir
29.07.2008 12:59:28 / didda

Nýjar heimasíður

Við erum semsagt búin að fá okkur nýtt lén til að setja upp síðu fyrir fjölskylduna ;)

Það sem við erum mest að leika okkur með núna eru tvær síður, eitt og tvö.

Þessar síður eru í vinnslu svo ég vil að fólk taki með fyrirvara það sem er þar en þó eru einhverjar fréttir þar sem hef ekki sett hér inn á bloggið hjá mér ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 17:41:39 / didda

Ný heimasíða (*53)

Núna erum við Þórður búin að vera að vinna í því að setja upp nýja(r) heimasíðu(r) fyrir okkur. (ath. þessa síðu er ekki hægt að skoða nema á íslandi)

Af öðrum fréttum, þá er Þórður loksins kominn í sumarfrí, 2 vikur. :D

Ég þurfti að skipta um dekk á bílnum í dag :evil:

Ég er búin að sólbrenna smá undanfarna daga í sól og 15° til 20°+ hita :þ

En já ég hvet ykkur til að kíkja á nýju síðuna mína ef þið hafið áhuga á að lesa meira ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 19:20:25 / didda

30000

Hver skildi ná því að verða númer 30000, ég á þó ekki svona flottar tölur eins og Ella frænka, en kanski get ég fundið eitthvað annað ef ég verð í góðu skapi :D

Ég er ekki búin að setja umsóknina í póst, á eftir að ljósrita eitt viðurkenningarskjal sem ég fékk fyrir Tákn með tali námskeiðið sem ég fór á í vetur.
Ég held að það sé allt í lagi að láta það fylgja með og svo þarf ég að finna upplýsingarnar um áfangann sem ég kláraði fyrir sunnan þegar ég var í Tómstundafræðinni.

En núna er ég komin út fyrir efnið og segi því stopp í bili.

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 23:40:26 / didda

"ný myndbönd" ... (*31)

Var að setja inn smá vídeo myndir úr símanum mínum inn á símabloggið mitt.
Þar er Sesselja að dansa og stelpurnar að æfa sig í að hjóla :d

Linkurinn er hér til hliðar, neðar, heitir: "símabloggið mitt"

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.04.2008 16:49:42 / didda

Afmæli og bakstur (*23)

Sóley fór í 5 ára afmælisveislu hjá leikskólabróður sínum í gær, veislan var haldin í íþróttahúsi Þelamerkurskóla og var öllum krökkunum á deildinni boðið. Það mættu nánast öll, um 20 stk. Veislan var frá kl.14 til kl.16.

Á föstudagskvöldið fór ég í leynivinavikuslúttið og komst að því að Valla var leynivinur minn, ekki átti ég von á því, takk Valla fyrir gjafirnar sem ég fékk frá þér :d

Í dag er ég búin að búa til 2 skyrtertur, muffins og eplaköku. (það er búið að borða muffinskökurnar og eplakakan er hálfnuð :D

Núna eru Sóley og Sesselja að leika sér í Duplo-lego-kubbunum á gólfinu fyrir aftan mig, og það heyrist m.a. "þú ert að skemma fyrir mér" en svo er allt í góðu og það er verið að leika eins og ekkert væri sjálfsagðara, í þessu heyrðist "hæættu Sesselja!!!"...

En það er bara gaman.

Svo er það fréttir af húsinu: ég held að ég verði að gefa það út að áðurútgefin dagsetning um það hvenær efri hæðin ætti að verða tilbúin kemur ekki til með að standast. Ný dagsettning er því 24. maí! Það er verið að vinna uppi núna, (Þórður og pabbi) en það hefur ekkert verið gert þar uppi núna í rúma viku! Þórður lagðist í rúmið fyrir síðustu helgi og var ekki unnið á meðan. Svo er hann búinn að ráða sig í smá aukavinnu sem er að taka smá tíma frá okkur! En hann er að fara á kvöldin í Keilusalinn.

Þannig að markmiðið er að geta haldið upp á 5 ára afmælið hennar Sóleyjar með pomp og prakt.

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 23:53:48 / didda

Veikt barn (*22)

Núna sit ég í tölvunni og er að hlaða inn myndum á barnalandssíðurnar hjá stelpunum (undur og stórmerki gerast enn).

Þórður er að vinna í Keilunni og ég heng í tölvunni á meðan :haha:

Þegar ég sótti Sesselju í leikskólann í dag var mér sagt að hún væri komin með hita, það var nýbúið að mæla hana og hún komin með rúmlega 38°C hita. Núna liggur hún í sófanum við hliðina á mér og sefur, ég mældi hana fyrr í kvöld og þá var hún með rúmlega 39°C hita :cry: og fer því pottþétt ekki í leikskólann á morgunn, spurning hver verðu með henni heima!

Ég er semsagt að hlaða inn myndum á síðurnar þeirra þannig að núna verð ég með nýjar myndir frá þessu ári inni á síðunum en ekki eins og í fyrra þegar myndirnar komu inn í lok árs fyrir árið :^)

Það er núna leynivinavika í vinnunni og ég var að muna eftir því að ég þarf að taka kökuna sem ég bakaði út úr ofninum!

Þá er það búið, þannig að ég verð ekki með brauðskorpu í forminu á morgun !

En já það er leynivinavika í vinnunni þar sem starfsfólk á yngsta stigi er búið að draga um leynivin og er að senda viðkomandi glaðning núna í vikunni, (m.a.v. 3 skipti) og svo á föstudagskvöldið verður "hittingur" þar sem við eigum að giska á hver við höldum að sé okkar leynivinur og svo segja til um það hver er okkar leynivinur ;) það er rosalega gaman að sjá hvað fólk er að fá og sjá hugmyndaflugið hjá sumum. Eitt sem mér finnst rosa sniðugt og það er að annar íþróttakennarinn fékk topp ásamt "buffi" og á miðanum stóð "út að skokka", svo er búið að gefa nammi, kerti, ávexti og margt fleira skemmtilegt.

En núna er Þórður kominn heim og ég held að ég fari að koma mér í rúmið.
Góða nótt


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.03.2008 17:05:16 / didda

Nýjar myndir á símasíðunni minni! (*18)

Sjá hér til hliðar 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 18:36:48 / didda

didda.blogcentral.is (*8)

Bara til að allir sjái sem þurfa á að halda að þá er ég búin að breyta vefslóðinni minni örlítið, núna er það bara didda.blogcentral.is en ekki didda_ak....

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 19:37:52 / didda

Afrit af símablogginu mínu!

27. júlí 2007

Á Egilstöðum


Stoppuðum hjá Finni á leiðinni á Djúpavog

 

24. júlí 2007

Sóley með banana í eyrunum


Á ferðalagi í gær

 

Ferðalag


Gistum hér í nótt.

 

6. júlí 2007

Á röltinu


Fór út að labba með stelpurnar og við fengum okkur hádegismat á Amtsbókasafninu. Erum búnar að fara með strætó til mömmu og pabba, þar var enginn heima :-P fórum því til baka og á bókasafnið.

 

15. júní 2007


Þetta er smá prufa hjá mér, sendi nefnilega mynd úr nýja símanum mínum á netið og hún endaði hér og nú er ég búin að setja myndirnar úr símanum í tölvuna og get sett þær hingað inn án þess að þurfa að senda þær ;)
Til dæmis að þá tók ég mynd (14. júní) af pabba og litla bróður við að setja niður staura í undirstöður fyrir nýja pallinn sem Dúi og María eru að smíða/byggja fyrir framan hjá sér.
Svo tók ég þessa mynd í dag (15. júní) þar sem þeir eru að ganga frá festingum í vegginn fyrir einn þverbitann.
En núna ætla ég að láta þetta duga hér.

 

13. júní 2007

Úti í góða veðrinu


 

12. júní 2007

Að snýta sér



 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 12:10:44 / didda

ofvirk eða!

Jæja best að skrifa smá fyrst ég er inni á síðunni minni.

Dagurinn í dag.

Fór á fætur rétt fyrir kl.9 og klæddi mig og labbaði yfir í Átak, þar sem ég mætti í tíma kl.9:15, þar sem prógrammið samanstóð af upphitun á gólfi og þrekhringur, endað á magaæfingum.

Svo labbaði ég heim og er búin að hjálpa Sóleyju að taka til í herberginu hennar, og ryksuga gólfið. Á eftir að moppa yfir gólfið.

Svo bíður eftir mér stofugólfið, sem er þannig að það sést ekki í það, aðalega vegna þess að Sesselja ákvað "að skoða eitt dagblað í tætlur".

En í gær í vinnunni fór ég með bekknum í óvissuferð, það var rosalega gaman fórum af stað rétt upp úr kl.10 og komum til baka um kl.13. Endilega að skoða myndirnar sem ég hjálpaði Öllu við að setja á heimasíðu bekkjarins í gær. Þar er líka ferðasagan.

Ég er búin að hjálpa aðeins við að laga síðuna og bæta inn nýjum myndum.

Þá dettur mér náttúrulega í hug að ég er ekkert búin að gera í síðum dætra minni. En nú er það á stefnuskránni hjá mér (voða kosningalegt).

Enda er kosningardagurinn í dag, og í framhaldi af því sem ég las hjá frænku minni sem skoðaði hvaða flokk hún ætti að kjósa á þar til gerðri síðu. Þar komst ég að því að ég er voðalega lítið inni í þessum málum náði ekki nema

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  29  Alls: 79703
Dagsetning
20. mars 2010
Hvað er klukkan
Hvenæar kom ég síðast
Ég var síðast inni þann 18 janúar
Leitarbox

Stórafmæli
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 45 dögum
Stórafmælið