|
Kennsla hefst á 4 önn
Fyrir 66 dögum
Jólafríið búið
|
22.05.2009 11:07:37 / didda
Þá er eldhúsinnréttingin komin upp (nema einn skápur) og bara eftir að líma saman og kítta í kringum borðplötuna. 
Það er líka loksins búið að tengja ljósin undir skápunum og efst í glerskápunum, það tók bara 6 ár Ég er mjög sátt við útkomuna 
Síðasta einkunin er komin hjá mér og náði ég öllum fimm áföngunum sem ég var í, lægsta einkunn 7 og hæsta 9, meðaleinkunin er 8,2 (var 8,3 fyrir áramót) ekki hægt að kvarta yfir þessu. Ég var yfir meðaleinkun í öllum áföngunum nema einum, þar sem ég fékk 7 en meðaleinkun hópsins er 7,09 (ég tel þetta vera innan skekkjumarka) og get því ennþá sagt að ég hafi ekki farið undir meðaleinkun í neinum áfanga 
Á morgun er planið að vera með matarboð uppi og því verður að taka á honum stóra sínum í dag og á morgun og klára að ganga frá því sem er eftir að ganga frá, og taka til og þrífa.
Svo er stóri dagurinn á sunnudaginn en þá verður eldri daman 6 ára, (ótrúlegt hvað tíminn líður hratt). Hún býður öllum stelpunum á deildinni sinni í afmæli sem er frá 12-14, þær eru 13 sem fengu afmælisboð frá Sóleyju 
Svo er búið að bjóða okkur í aðra veislu frá kl.14 til 17 en ég geri ekki ráð fyrir að geta farið þangað, kanski að Þórður kíki með stelpurnar á meðan ég klára að undirbúa fjölskylduafmæliskaffið sem verður líklegast frá kl.16 
En núna þarf ég að fara og sækja mömmu á flugvöllinn, en hún er að koma frá Reykjavík. Skrapp þangað í gær með pabba, hann verður fram yfir helgi.
»
12.05.2009 17:22:55 / didda
Fimmtudagur 30. apríl: Vöknuð fyrir allar aldir og búin að fara í sturtu og byrjuð að lesa yfir glærurnar í síðasta sinn kl.6, þegar útskriftarkrakkarnir úr VMA áttu leið hér hjá í vögnum dregnum af dráttarvélum/traktorum. Mætt í próf kl.9 í þróunarsálfræði, gekk nokkuð vel, á eftir að koma í ljós hvort að ég hafi náð að skrifa það sem kennarinn vildi sjá eða ekki  Föstudagurinn 1. maí: Þá var efri hæðin lökkuð bæði morgun og kvöld, þar með var búið að lakka gólfið á efri hæðinni (fyrir utan það sem tilheyrir búri og baðherbergi). Þar á milli var ég upp í skóla að byrja á lokaverkefninu í íslensku sem ég skilaði síðan mánudagskvöldið (rétt fyrir miðnætti) þann 4. maí. Laugardagur og sunnudagur fóru alveg í þetta verkefni sem og mánudagurinn, fyrir utan þann tíma sem ég notaði í að sækja stelpurnar í leikskólann og fara út á Bjarg í Gravity tíma. Þá tók við tími sem átti að nota til að læra fyrir stærðfræðiprófið sem ég fór í fimmtudaginn 7. maí. Því miður þá get ég ekki sagt að ég hafi notað tímann gáfulega frekar en oft áður! Afleiðingarnar eru þær að þegar ég mætti í prófið þá var ég ekki búin að læra nóg (eða nánast ekkert) og náði ekki einu sinni að klára öll dæmin  Það eina sem ég var búin að gera var að ég var búin að merkja bókina og stílabókina en við máttum hafa með okkur öll gögn sem tengjast áfanganum. Á fimmtudagskvöldið tókum við eyjuna í sundur og fluttum upp og settum saman aftur, fyrir utan skúffur og skáphurðir.
»
23.04.2009 13:43:35 / didda
Ákvað að skell hér inn nokkrum línum, það er ekki nóg að skrifa bara á Facebook (fésið)!
en núna er ég upp í skóla að læra, ákvað að þetta þýddi ekkert í morgun þegar sólin hafði betur en svefninn og ég var komin á fætur fyrir kl.9 og komin af stað upp í skóla fyrir kl.10. Þarf að klára nokkur verkefni fyrir morgundaginn svo það er af nægu að taka.
Svo er próf á fimmtudagsmorguninn í næstu viku í sálfræði svo það er nóg að lesa fyrir þann tíma. Þá tekur við lokaverkefnið í íslensku sem á að skila 4. maí, verð nú samt að vinna aðeins í því þegar ég nenni ekki að lesa fyrir sálfræði! Þegar því er lokið er að skella sér í stærðfræðina, en ég er að fara í próf í henni fimmtudaginn 7. maí og verð svo komin í sumarfrí kl.17 þann sama dag, ef allt gengur upp 
Ég er núna búin að klára og skila öllum verkefnum í lista-áfanganum, er að vinna í sjálfsmati og skilamöppu í grunnskólafræði (sem skilast á morgun) og verð þá búin með þann áfanga líka. Þá er eins og fyrr segir bara ÞSÁ (sálfræðin), ÍSL og STÆ eftir 
En annars þakka ég fyrir veturinn og megi sumarið vera sem flestum jákvætt og hressandi
»
17.12.2008 09:38:42 / didda
Jæja þá er það frá, ég er búin að ná hugmyndasögunni og ekki nóg með að ég hafi náð að þá fékk ég 6,5 og meðaleinkunin er 5.95. Þannig að ég er yfir meðaleinkun í öllum 4 fögunum sem ég er búin að fá út úr. Varð að setja þetta hér inn, er gjörsamlega að springa úr monti 
en ég bíð eftir einhverjum viðbrögðum við síðustu færslu 
»
16.12.2008 20:06:58 / didda
Spurning dagsins, hvað haldiði að ég hafi fengið í lokaeinkunn í stærðfærði?
»
14.12.2008 23:11:15 / didda
Búin með síðasta prófið og gekk bara nokkuð vel, kemur vonandi fyrr en seinna í ljós. Föstudagurinn var uppfullur af mjög mismunandi dagskrá hjá mér, m.a. próf, blak, aðstoða við að setja upp jólatré fyrir jólaball sem var svo á laugardag, og dagurinn endaði svo á því að ég fór með mömmu á Frostrósartónleikana sem voru í íþróttahöllinni. Það var mjög gaman og gott að enda daginn og próftörnina á þessum tónleikum 
Svo á laugardagsmorguninn var jólaball foreldrafélagsins í leikskólanum, sem var haldið í íþróttahúsi Oddeyrarskóla.
Eftir hádegi var farið í piparkökuskreytingar heima hjá mömmu, stelpurnar stóðu sig vel.
í dag var síðan tiltekt og bíóferð, en við fórum öll á Madagaskar 2, mjög góð mynd og stelpurnar höfðu báðar gaman af. Sátu báðar þægar og góðar allann tímann. 
Ég og Sesselja skruppum síðan í Norðurportið en þar voru Ella og amma Hlíf með sölubás, systir mín líka en hún kom ekki fyrr en það var farið að ganga frá!
Svo er meiri tiltekt og jólakortagerð framundan, en ég ætla að senda nokkur jólakort fyrir jólin núna, ég hef enga afsökun, er komin í jólafrí og hef því nægan tíma.
En núna er komin tími á að fara að sofa.
Góða nótt og njótið vikunnar 
Bara 10 dagar til jóla 
»
08.12.2008 13:20:38 / didda
Þá er ég komin með lokaeinkunina mína í íslensku. Fór í prófið á fimmtudaginn og var nokkuð sátt við það. Var að gera mér vonir um að fá 7, en fékk 8, og er í skýjunum núna. 
En núna er að ná sér aftur niður og halda áfram að undirbúa sig fyrir stærðfræðiprófið sem er eftir rúman sólarhring, því ég ætla mér að ná a.m.k. átta þar eða hærra 
»
06.12.2008 21:12:49 / didda
Þá eru tvö próf búin og tvö eftir.
Íslenskan gekk nokkuð vel, ég held að ég eigi a.m.k. að ná, kemur í ljós fyrir næstu helgi 
En á þriðjudaginn er svo stærðfræðiprófið og ég er aðeins byrjuð að undirbúa mig fyrir það, aðalega að merkja við í bókinni þar sem ég má hafa hana með mér, svo er að útbúa formúlublöðin sem ég má hafa með mér.
En af öðrum fréttum að þá eigum við bara einn bíl, síðan í gærdag. En þá seldum við bláa bílinn 
Njótið aðventunnar og farið rólega í jólaundirbúningnum 
»
04.12.2008 08:30:39 / didda
20 dagar til jóla og íslenskupróf eftir hádegi í dag.
bestu kveðjur úr snjókomunni á Akureyri
»
01.12.2008 10:10:11 / didda
Jæja þá er kominn 1.desember
Um þarsíðustu helgi fór mest allur minn tími í að skirfa íslensku ritgerðina, en ég fór þó líka í eitt afmæliskaffi. Ég fór með stelpurnar í afmæliskaffi til ömmu Hlífar.
Á fimmtudeginum og föstudeginum þaráður, var laufabrauðsútskurður í Holtagötunni.
Núna um helgina var jólaföndur í leikskólanum þannig að fyrrihluti laugardagsins fór í það og svo var ég uppi í skóla að læra fram að miðnætti á laugardaginn, kom ekki fyrr en eftir kl.16 upp í skóla.
Í gær, sunnudag, kláraði ég heimadæmin í EVÍ og eftir hádegi fór ég aftur upp í skóla og hélt áfram að læra fyrir HSA.
Kl.19 í gær var svo búið að bjóða Þórði og mér í smá jólaboð í "keiluvinnunni" hans. Það var mjög gaman og vorum við þar til klukkan ellefu.
Núna er ég svo komin aftur upp í skóla og á að vera að lesa fyrir HSA-prófið sem er klukkan níu í fyrramálið.
Læt þetta duga í bili
23 dagar til jóla
»
17.11.2008 19:40:47 / didda
Um helgina var nóg að gera í afmælum og matarboðum.
En á laugardaginn var búið að bjóða okkur í tvær afmælisveislur þar sem verið var að halda upp á sitt hvort 5 ára afmælið. Hið fyrra var hjá Önnu Catherinu og hitt hjá Helga Má. Til hamingju með afmælin bæði tvö.
Svo þegar afmælisveislum var lokið fóru Sóley og Sesselja heim til mömmu þar sem þær gistu aðfaranótt sunnudags.
Svo um kl.18:30 kom rúta og sótti okkur Þórð en nýji vinnustaðurinn hans Þórðar bauð öllum starfsmönnum og mökum út að borða á villibráðarhlaðborð í Sveinbjarnargerði. Þetta var mjög góður matur og skemmtilegur hópur sem Þórður er að fara að vinna með, mjög fjölbreyttur
Svo á sunnudagsmorguninn ákvað ég að fara upp í skóla og hitta Sigrúnu og Hönnu sem voru þar að reikna heimadæmin í EVÍ. Á meðan fór Þórður inn í Aðalstræti til að hjálpa mömmu við að baka piparkökur með stelpunum.
Svo þegar við hættum að reikna upp í skóla fór ég inn í Aðalstræti og kláraði þar heimadæmin í STÆ sem ég átti að skila fyrir miðnætti (á sunnudagskvöldið). Ég klúðraði einu dæmi og fékk 9 í einkunn 
En núna er næstsíðasta kennsluvikan á haustönninni byrjuð og þessi önn að verða búinn, ég á eftir að gera eina ritgerð í íslensku (sem ég hefði léttilega getað verið búin með!), klára eitt lítið verkefni í ísl. (skila núna á miðvikud.), hópverkefni í AÐF, eitthvert rökfræðiverkefni!, klára tvö heimadæmi í EVÍ og eitt heimadæmi í STÆ. Þá er að læra fyrir próf en ég fer í 4 próf.
Jæja ég held að ég hætti þessum skrifum hér og snúi mér að einhverju öðru, eins og einni ritgerð eða einhverju svoleiðis
»
10.11.2008 08:21:25 / didda
Þá er nóvember komin af stað og styttist óðfluga í lokapróf á minni fyrstu önn í HA.
En það er búið að vera nóg að gera í skólanum, búin að skila einni ritgerð og fá hana aftur, fékk 8 fyrir Í síðustu viku flutti ég einn fyrirlestur í Hugmyndasögu þar sem ég sagði frá ævisögunni Undir Fönn, sem gekk ágætlega, ég var reyndar full af kvefi og daginn áður þegar ég var að lesa heima hóstaði ég frekar mikið, svo ég var með áhyggjur af að geta lítið lesið fyrir hósta en það slapp til, eftir að hafa hakkað í mig slatta af hálsmolum áður en ég flutti fyrirlesturinn  Á föstudaginn var síðan miðannarpróf í EVÍ sem gekk ekki of vel, af 10 spurningum var ég ekki með nema 4 (eða 5) réttar. Vonandi fæ ég 5 spurninguna líka metna rétt og þá hækka ég mig úr 4 í 6, ef ég hef reiknað rétt, því sú spurning gildir frekar mikið  Um helgina var ég að klára heimadæmi í EVÍ, og hélt áfram með ævisöguverkefnið, en ég þarf líka að skila skýrslu um bókina.
Jæja nú er best að snúa sér aftur að lærdómnum og nota tímann vel.
En svo 12. desember er síðasta prófið og þá er mamma líka búin að bjóða mér á Frostrósartónleikana hér á Akureyri 
Bless bless
»
28.10.2008 13:41:35 / didda
Á laugardaginn bauð mamma allri fjölskyldunni í kjötsúpu, það endaði með þvi að það voru 15 manns í mat.
Á laugardaginn fór ég upp í skóla eftir hádegi til að vinna í aðferðarfræði-verkefni og var þar þangað til rúmlega fimm, en þá fór ég heim og sótti Þórð og stelpurnar og við fórum í matinn til mömmu, ég hafði tölvuna með mér og hélt smá áfram á laugardagskvöldið með verkefnið.
Á sunnudaginn fór ég upp í skóla um kl.10 og var þar til rúmlega sex að vinna í sama verkefni, það endaði með því að ég byrjaði nánast upp á nýtt með verkefnið. Mér tókst þó að skila verkefninu áður en ég fór heim svo er bara að bíða og sjá hvernig kennaranum líkar 
En núna ætla ég að halda áfram að fylgjast með í tímanum!
»
Síður: 1 2 3
|
Heimsóknir
Í dag: 14 Alls: 79604
Hvenæar kom ég síðast
Ég var síðast inni þann 18 janúar
Stórafmæli
Fyrir 43 dögum
Stórafmælið
|