|
Kennsla hefst í M.ed. náminu
Fyrir 158 dögum
Skólinn byrjar
|
26.08.2011 21:34:03 / didda
Þá er þessu sumri að ljúka. Við tekur skóli, kennsla og helgarvinna. Búin að taka þátt í nokkrum mótum í sumar, skambyssu og riffil og gengið nokkuð vel miðað við fyrsta sumarið, nú er að ná betri árangri og toppa þetta næsta sumar  Já og ég er búin að kaupa mér vespu (bensín) og búin að rúnta um á henni núna í vikunni og gengur bara vel. En þá held ég að ég láti þessu bloggi lokið og skelli mér út í bæ að hitta nýnema HA á Pósthúsbarnum
»
16.06.2011 20:32:19 / didda
Svona til að hafa smá tilbreytingu í blogginu  Sumarið 2011 (eða það sem á að heita sumar!) fer í vinnu í Tiger og einhverjar skotkeppnir og veiðimót  Síðan tekur við áframhaldandi skólaseta hjá mér næsta vetur en ég ætla að halda áfram í skóla og byrja á M.ed námi næsta vetur. Jæja nóg í bili e.s. mamma til hamingju með afmælið
»
24.03.2011 17:56:51 / didda
Eitt ár frá síðustu færslu, þar sem ég var að tala um hve lítið væri eftir af skólanum og núna er ennþá minna eftir. Ég er á fullu að reyna að vinna í 50% ritgerð í Heimspeki menntunar sem á að skila um helgina og þá tekur við undirbúningur fyrir lokapróf í líffræði sem er 5. apríl á meðan maður reynir að hjakkast áfram í lokaritgerðinni sem á að skila í lok apríl. Já þessu er að verða lokið, ég er að verða búin með þrjú ár í háskóla! Þá tekur við hvað svo? Á maður að reyna að fá vinnu eða halda áfram í skóla og fara í meistaranám strax? Ég er allavega búin að skila inn umsókn í áframhaldandi nám við HA og svo er að sjá hvernig staðan verður á vinnumarkaðnum næsta skólaár. En Já að öðru ég er búin að vera rosalega dugleg í ræktinni frá áramótum og er búin að ná fyrsta markmiðinu sem ég setti mér (eða alveg að ná því) sem var að fara niður í næsta "tug" á vigtinni  Var í morgun x0,0 kg  Nú er að halda áfram í sama pakka og reyna að nálgast næsta tug fyrir sumarið. Held ég láti þetta duga núna og aldrei að vita nema maður fari að koma einhverju hér inn fyrr en að ári  Ef einhver les þetta þá má hinn sami gjarnan setja nafnið sitt við í athugasemd, bara svona upp á gamanið fyrir mig, verður þá kanski hvattning fyrir mig til að taka upp bloggskrif (ekki er ég beint að eiða orkunni í önnur skrif eftir lok apríl  )
»
24.03.2010 08:46:19 / didda
Það er búið að vera allt of mikið að gera í þessum blessaða skóla mínum. Þess vegna er ennþá betra þegar maður fær viðurkenningu fyrir vinnuframlagið og fær verkefni til baka upp á 9 og svo upp á 10  Núna fer þó að styttast í þessu hjá mér og verkefnunum fækkar jafnt og þétt, ennþá eru þó eftir tvö mjög stór verkefni, annað 50% og hitt 60%, svo fer ég í tvö próf (100% og 40%). Ef allt gengur vel að þá verð ég komin í sumarfrí 7.maí  og þá er stefnan á að gera eitthvað skemmtilegt
»
18.01.2010 22:07:57 / didda
»
18.01.2010 21:30:22 / didda
»
17.01.2010 17:44:41 / didda
Núna er ég orðin stóra frænka 
Hafði ekki rétt fyrir mér með strákinn, þar sem í heiminn kom lítil dama.
Innilegar hamingjuóskir til littla bró og Maríu 
Uppfært: daman kom í heiminn 17:20, 13 merkur og 52 cm
»
15.01.2010 19:07:07 / didda
Í dag á Einar frændi afmæli og á morgun Óttar, þetta eru stóri og littli bræður pabba  Svo á morgun á littli bróðir minn afmæli. Sendi afmæliskveðjur til ykkar allra.
»
12.01.2010 11:28:13 / didda
Í gær átti að vera fyrsti skóladagurinn og ég mætti eldhress eftir að hafa farið í Bakaríið við brúna með Hönnu, en þegar við komum var enginn kennari kominn. Svo leið og beið og ekki kom kennarinn, þegar 15 mínútur voru liðnar af tímanum ákvað ég að fara fram á skrifstofu og kanna málið. Þegar hringt var í kennarann sem var upp á skrifstofu í rólegheitunum að undirbúa sig fyrir kennslu annarinnar, fékk hún nánast taugaáfall, því hún hélt að tíminn væri ekki fyrr en í næstu viku og var því ekki tilbúin. En hún kom og ræddi aðeins við okkur og svo fórum við heim. Þannig að í raun verður ekki fyrsti skóladagurinn minn eftir jól fyrr en á morgun. En þá þarf ég að mæta kl.8 og það verður munur að þurfa að vera tilbúin og sjálf búin að borða morgunmat fyrir kl.8 þegar ég fer með stelpurnar í skólann!
En þá er bara að fara fyrr að sofa í kvöld en í gær, enda er ég gjörsamlega að leka niður og nenni ekki neinu.
Ég byrjaði áðan á að brytja niður jólatréð og er búin að setja greinar í einn pappakassa en það sér varla á trénu !
Svo er ég að verða búin með heimatilbúnugjafirnar sem ég lofaði reyndar að koma frá mér í fyrradag og í gær, en þetta er að koma, ég þarf að pakka annarri inn og setja í póst, hin verður til vonandi á morgun, fer eftir því hvað ég verð dugleg í dag og kvöld.
Jæja held ég láti þessa rommsu duga í bili.
Já, ég þarf að halda úti bloggi í einum áfanganum í skólanum, spurning hvernig það kemur til með að ganga!
»
12.01.2010 11:20:35 / didda
Á laugardaginn fór ég í vinnuútilegu í Fálkafelli, mæting var við hitaveituskúrana kl.12 en þar sem Þórður þurfti að vinna á laugardagsmorguninn og ég ekki með greiðan aðgang að pössun, mætti ég ekki fyrr en kl.12:30
Þegar ég kom uppeftir var þónokkur vindur og þegar ég var búin að ná hinum sem voru bara rétt á undan mér, þurfti maður að stoppa reglulega til að ná andanum og svo þegar ofar kom, mátti maður hafa sig allan við að halda sér á réttri leið vegna hliðarvinds. Aukakílóin komu að góðum notum við að halda sér á jörðinni 
En svo komum við uppeftir og þá fór ég ásamt Arnóri í að kveikja upp, gaman að komast í það eftir langa pásu 
Svo þegar hiti og næring var kominn í liðið var farið að undirbúa starfið fram á vor.
Í kvöldmat var boðið upp á hamborgara og í eftirmat, kekkjaskyr og royal-súkkulaði-búðing og þeyttan rjóma 
Svo var kvöldvaka, en því miður komu engir gestir (a.m.k. ekki sýnilegir) en við vorum með skemmtiatriði og sungum þau lög sem verða lög mánaðarins fram á vor. 
Svo var boðið upp á kakó og spilað í framhaldi af því, ég prófaði nýtt spil sem heitir: ?
Svo var farið ofan í poka.
Sunnudagurinn fór í að ganga frá og rölt niðureftir, ekki gott færi, það var hláka svo það var vel blautt undir snjónum og þar sem hann hafði tekið upp var vel blautt í leðjunni 
En heim komst ég heil á húfi eftir frábæra helgi með frábæru fólki.
»
12.01.2010 11:13:03 / didda
Ég fór með stelpurnar á brennuna á þrettándanum eftir að hafa borðað hangikjöt hjá mömmu 
Í hádeginu á fimmtudaginn fór ég í opin tíma í Gravity á Bjargi, það var fínt og stefnan er á að mæta í þá tíma í vetur eins og hægt er.
Föstudagurinn 8. janúar. Blak kl.16, mættir 8, sem var alveg frábært, góðir leikir spilaðir og tekið vel á því.
»
05.01.2010 08:27:20 / didda
Í morgun var fyrsti skóladagurinn á nýju ári hjá Sóleyju og gekk vonum framar að koma henni á fætur og í skólann. Sesselja var ef einhver var með smá þreytu erfiðleika, hún er alltaf sú sem dregur hina á fætur. Eins og í gær, var hún ein greiið á fótum að gera sitt til að koma mér og systur sinni á fætur! En núna er fyrsti nuddtíminn á nýju ári. Vona að bíllinn fari í gang, aftur komið -12°C
»
04.01.2010 14:15:13 / didda
Lét verða af því í morgun að skreppa út á Bjarg og rölta rúma 2 km á brettinu. Stelpurnar voru í barnapössuninni á meðan (hafði ekki nema 30 mín, vegna opnunartímans þar). Svo er nudd í fyrramálið, og spurning um að skella sér úteftir aftur og rölta smá meira? Jæja, bíllinn fór í gang í morgun enda ekki nema -4°C í morgun og hann mun samvinnuþýðari
»
03.01.2010 12:46:10 / didda
Það er aðeins of kalt fyrir bílinn, gátum ekki sett hann í gang í gær og ekki útlit fyrir að það verði neitt auðveldara í dag!
-15°C eru aðeins og lítið fyrir hann!
»
Síður: 1 2 3 ... 19
|
Heimsóknir
Í dag: 4 Alls: 126947
Dagsetning
10. febrúar 2012
Hvenæar kom ég síðast
Ég var síðast inni þann 26 ágúst
Stórafmæli
Fyrir 737 dögum
Stórafmælið
|